Gott kvöld. Þegar ég leit útum
gluggann í morgun eftir að hafa rifið mig uppúr rúminu, til þess
n.b að fara í skólann, já..skólann, hann er byrjaður!! /hvert
fór sumarið/? þá blasti við mér snjór í fjöllunum hér innar í
firðinum! Er ekki ágúst hjá neinum nema mér? Á maður ekki að
vera að tjalda og grilla og eitthvað í ágúst? Ekki klæða sig í
dúnarann og skjálfa á beinunum? Nei, sko aldeilis ekki, hér er
bara skítakuldi og slor!
Enda sagði ég nei nú hingað og ekki
skrefinu lengra, ég flyt héðan og til einhverra ómótstæðilegra
heitra landa þar sem bolur og pils er ívið mikill
klæðnaður!
Talandi um sólarlönd, ég var á spáni.
Á spáni kynntist ég alveg nýrri hlið á lífinu. Ég upplifði það í
fyrsta skipti, jahh, kannski fyrir utan Eyjar
að vera ein með
vinkonum mínum fyrir utan landsteinana, engir foreldrar til að
passa mann og vara mann við allri vitleysunni sem bíður manni þarna
úti í þessum stóra heimi.
Enda er
kominn tími til að maður fari að axla ábyrgðina sem því fylgir að
vera orðin 18 ára!
Benidorm, já, ég, Brynja og Elísa
skemmtum okkur sko aldeilis vel, Brúnkan segir sko ekkert til um
ánægjuna sem við fengum útúr þessari ferð, eitthvað gleymdist
nefninlega að baða sig í sólinni! Erfitt að vaka svona á nóttunni
og sofa á daginn, en hey, ekki okkur að kenna að það skín ekki sól
á milli klukkan 23 og 08 á spáni?
En djammið og næturlífið á
klúbbunum, ströndinni og hótelherberginu okkar var nú ekki það eina
sem við gerðum þó það hafi verið tímafrekt..
Við fórum í
Terra Mitica, sem er tívolígarður, Aqualandia, sem er vatnagarður
og svo 2 moll, við fórum út að borða á mis góða veitingastaði og
kynntumst mis fáguðum leigubílstjórum!
Ekki get ég sagt að peningarnir vaxi
á trjánum þarna á benidorm, eitthvað var nú lítið um innkomu en
mikið um útgjöld! Ég eyddi langt um efni fram EN ég sé ekki eftir
einni krónu, hvað er gaman að fara til útlanda og þurfa að halda
aftur af sér alla daga, borga bara seinna, skelli þessu á
visa-rað
Æji, hvern er ég að reyna að
blekkja, ég hef ekki margt annað að segja um “allt” hitt sem
við gerðum fyrir utan djammið svo ég ætla bara að tjá mig um
þann part ferðarinnar!
Við fórum mikið í enska hverfið og
voru þar ríkjandi bretar og íslendingar! Við fórum ótrúlega mikið á
stað sem heitir Champions, alveg æðislegur bar þar sem bestu
kokteilar alheimsins fást, enda var það sár stund reiði og leiða
þegar ég fékk mér síðasta Pina colada drykkinn minn á þeim stað...
Meirað segja klósettin voru fín þar sem er meira en hægt er að
segja um marga staðina! Þar var hægt að sitja úti og hlusta á
tónlistina sem barst að innan, horfa á fólk atast á nautinu og allt
fólkið sem átti leið hjá! Talandi um þetta naut, það var nú bara
fyndið þegar kall og kona fóru á þetta, en mér blöskraði þegar
fullorðinn karlmaður skellti sér á nautið með ungum syni sínum,
þetta leit vægast sagt mjög ósiðferðislega út!
Við áttum nú fleiri uppáhaldsstaði en
Champions og ber þar hæðst að nefna Red Dog og Village Pub! Maður
lenti nú í ýmstu dónalegu á Red dog, þar voru nefninlega þessar
líka djörfu sýningar, við sáum t.d. life sex on stage /reyndar á
stað sem heitir Yokers/, lespíu-show og karl og kven strippara!
Þetta eru sko hlutir sem maður sér nú ekki á hverri helgi
hér á sjallanum!
En svona
show voru ekki það eina spaugilega sem við lentum í, onei, það er
sko gaman að vera túristi
haha..
Við vorum á alveg hreint frábæru
hóteli, Milords suits, en vorum við víst einu stigi of háværar eitt
kvöldið þó ég vilji nú ekki kannast við aðild að þessu máli! Það
fór nú ekki betur en svo að við vorum vaktar við það daginn eftir
“ódæðisverkið” við það að einhver er að nauðga dyrabjöllunni okkar,
klukkan ekki nema rétt að skríða uppúr hádegi, um 2 leitið minnir
mig, og við ekki á þeim buxunum að vakna strax! Brynja hafði sig nú
þó í það að fara til dyra og stendur þar ekki góður vinur okkar og
kunningi Mattías fararstjóri Sumarferða! Samtalið sem átti sér stað
á milli hans og Brynju innihélt eitthvað á þessa leið: Þið voruð
með læti, hótel stjórarnir verulega óhamingjusamir og eru að hugsa
um að henda ykkur út, það var nefninlega kvartað, ég talaði hann
til en eftir að ég hef varað ykkur við eruð þið einar á báti ef
ykkur er svo hent út séuð þið aftur með læti og þá skuluð þið bara
hoppa uppí næstu vél og drattast aftur heim til
íslands!!
Obbosí.. ekki boðaði þetta nú gott!
Enda vorum við mjöög hljóðlátir og góðir hótelgestir það sem eftir
var ferðarinnar!
Eitt kvöldið stóð svo uppúr líka, ein
okkar fór aðeins á undan hinum 2 til að reyna að ná í leigubíl, hún
stendur svona út á götuna og er að litast um eftir lausum taxa
þegar að kemur lítill fólksbíll, hann stoppar og spyr hana hvort
hún sé með fylgdarþjónustu, ekki héldum við að við yrðum mikið
eldri og pissaði ég nærrum á mig úr hlátri! Það fór ekki betur en
svo að þegar það kom loksins leigubíll og tók okkur uppí henti hann
okkur út eftir u.þ.b 20 metra! Honum hefur ekkert litist á drukknar
íslenskar stelpur sem gátu varla stamað uppúr sér nafninu á
áfangastaðnum fyrir hlátri!
Við
kynntumst líka manneskjum sem eiga eftir að eiga sinn stað í okkar
hjörtum í langan tíma! Hommarnir sem vinna á matsölustaðnum á
hótelinu okkar, barþjónarnir á Champions, stór hluti íslendinganna
sem við hittum og fleira yndislegt fólk!
Já það ríkir
sko söknuður hér á bæ..
Við vorum þó alveg
ótrúlega heppnar, við áttum að fara heim þann 11 ágúst á fimmtudegi
en Mattías félagi ákvað að verðlauna okkur fyrir góða hegðun
nee,
segi svona! Það var víst ofbókað í vélina okkar og bauð hann okkur
að vera 2 nætur auka, á öðru hóeli og með viðkomu í London á
leiðinni heim! Algjörlega frítt! Ekki þurftum við að hugsa okkur um
heldur tókum því með bros á vör!
Það var svo
á laugardegi sem við lentum á íslandi! Rigning kuldi og rok, já því
var sko klínt framan í okkur um leið og við mættum að þetta væri
ísland og hér værum við fastar!
Ég
átti mjög erfitt með
mig og hugsaði að með hverjum kílómetra sem ég keyrði vestur á leið
væri ég að fjarlægjast Spán og nálgast NORÐURPÓLINN!! Hvaða
heilvita maður keypti miða heim? Næst kaupi ég one way ticket og
kem aldrei aftur!
Blákaldur
veruleikinn ullaði á mig og frystihúsið, samkaup og meiri kuldi tók
við af unaðslegum hita og ljúfu lífi spánar!
Ég er meirað
segja nærrum búin að gleyma að gleðjast yfir þeim tíma sem ég átti
á þessum 16 dögum því ég hugsa svo mikið um það hvað það er
ömurlegt að vera komin heim
Neinei, nú hlakka ég bara til að fara
út næst, verð bara dugleg að vinna og vinna og þá verð ég komin til
spánar aftur áður en ég veit af með fyrsta stoppi á Champions í
nokkra kokteila!